Fréttir

Næsta verkefni ,Reykholt og Reykjavík fyrir sunnan

Tagged:

Nú eru menn við það að lenda mjúkri lendingu eftir að hafa svifið á skýjum yfir Vínarskógi og þýðum öldum Dónár hinnar bláu. Æfingar hefjast mánudaginn 30. janúar 2012. Nú er stefnt í Reykholt suður og til fundar við Karlakór Reykjavíkur.
 

Velheppnað Vínarkvöld

Tagged:

Nýárshátíð Karlakórsins var haldin fór fram laugardaginn síðasta, á
„Fjórtándanum“ eins og kallað var, og fór  ákaflega vel fram, var vel sótt
og tókst í alla staði prýðilega, okkur kórmönnum til ómældrar gleði. 

 

Hljómsveitin Salon Islandus voru gestir okkar á hátíðinni og lék við hvurn
sinn fingur, hvort heldur sem var undir söng okkar kórbræðra eða ein á báti
og náði að byggja upp magnaða stemmningu í salnum með kór og stjórnanda.
Sveitina leiðir Sigurður Ingvi Snorrason  sem leikur á klarínettu og með
honum eru þær Sigrún Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadóttir sem leika á fiðlu,
Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló, Hávarður Tryggvason á kontrabassa,
Martial Nardeau á flautu(r), Anna Guðný Guðmundsdóttir á píanó og Pétur
Grétarsson á slagverk.  Allt saman mikið fagfólk sem ljúft var að vinna með
og verður seint fullþakkað.

 

Kórinn þótti standa sig bærilega samkvæmt óformlegri skoðanakönnun í sal að
loknum tónleikum, bæði undurmjúkur og seiðandi en kunni greinilega enn að
taka á því þegar á þarf að halda eins og einhver orðaði það.
Einsöngvararnir, Helga Rós og Óskar Pétursson sýndu snilldartakta og tilþrif
sem seint verða toppuð. 

Hátíðarræðu kvöldsins flutti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og var
gerður góður rómur að máli hennar þó einhverjir úr fyrsta tenór séu enn að
gera upp við sig hvort þeir eigi að vera móðgaðir eða upp með sér! Ræðan var
bráðfyndin með alvarlegum undirtón þar sem ráðherra tónmenningarinnar benti
að verðleikum  á mikilvægi kórastarfs í landin.

 

Að tónleikum loknum var örstutt hlé sem kórmenn notuðu til þess að rýma
dansgólfið og var síðan slegið upp Vínardansleik undir styrkri stjórn Loga
Vígþórssonar dansstjóra og dansdömu hans, Hörpu Arnljótsdóttur við
undirleik Salon Islandus.  Dansleikurinn fór vel fram og greinilegt að fólk
kunni vel að meta þetta form skemmtunar og sýndi það með að fylla
dansgólfið. Tíðindamður heimasíðunnar heyrði á tal eldri hjóna. Hann:  „Mér
finnst betra hjá Geirmundi, maður heyrir meira í hljómsveitinni“. Hún:
„Láttu ekki svona maður. Skrúfaðu bara upp í heyrnartækinu og dansaðu“. Þar
með svifu þau út á gólfið í vínarpolkanum „Ólgandi blóð“

 

Karlakórinn Heimir þakkar gestum kærlega fyrir komuna og öllum þeim sem
gerðu viðburðinn mögulegan.  Takk fyrir okkur!"

 

Hér má svo sjá myndir frá viðburðinum. http://www.feykir.is/archives/46065

 
 

Stóra stundin !

Tagged:

Nú líður að stóru stundinni, Vínartónleikum Karlakórsins Heimis í Miðgarði,
laugardaginn 14. janúar kl. 20:30.  Undirbúningur fyrir tónleikana er á
lokaspretti, bæði hvað varðar söngæfingar og aðrar útréttingar, en í mörg
horn er að líta fyrir viðburð sem þennan.

 

Í gærkvöldi var haldin æfing með Óskari Péturssyni, sem gekk vonum framar
miðað við að Óskar kom blaðalaus, gleraugnalaus og eiginlega allslaus.
Þegar hann hafði fengið lánuð nótnablöð skánaði hann mikið, og varð svo enn
betri þegar hann fékk lánuð gleraugu til þess að lesa þau.  Vel fór á með
Óskari og söngstýrunni okkar, sem syngja saman í tveimur lögum og gera það á
glæsilegan hátt eins og þeirra er von og vísa.
Feykir leit við á æfingunni í gær byrtir á vef sínum afraksturinn feykir.is

 

Veðurspáin fyrir morgundaginn er þokkaleg, suðlæg átt sem vonandi verður
ekki of hvöss, með hlýindum og rigningu.  Tónleikagestir ættu því að eiga
greiða leið til okkar í Miðgarð, hvor sem er akandi, ríðandi eða gangandi.
Við brýnum þó fyrir fólki að fara varlega í hálkunni og myrkrinu.

 

Forsala miða í KS Varmahlíð og í Kompunni á Sauðárkróki er enn opin, einnig
verður hægt að kaupa miða við innganginn eins og verið hefur.  Við bendum
fólki á að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.
 

Hlutir sem gott er að hafa á hreinu fyrir komandi stórtónleika Heimis á laugardag komanda!

Tagged:

Allmargir hafa komið að máli við okkur síðustu daga og spurt: "Verður þetta síðkjólaball?"  Svo er gjarnan bætt við:  "Ég á ekkert til að fara í!"

Hér viljum við því árétta: Ekki er gerð nein krafa um klæðaburð gesta, svo lengi sem fatnaðurinn er snyrtilegur og heillegur.  Karlmenn þurfa ekki að mæta í kjólfötum, og konur ekki í síðkjólum (nema auðvitað ef þeim langar til).  Karlar þurfa aðeins að gæta því að vera ekki mikið betur til fara en kórfélagar, það gæti nefnilega kastað skugga á okkur.  Konur þurfa aðeins að gæta að því pilssídd sé siðsamleg.  Myndin að ofan, sem tekin var á nýársballi gangnamannafélags Austurdals á dögunum, er ekki leiðbeinandi um klæðaburð á vínartónleikum Heimis.

Hvað sem þessu öllu líður, þá stefnir í mikla tónlistarveislu á laugardaginn.  Við minnum enn á forsölu í KS Varmahlíð og í Kompunni á Sauðárkróki.

Vinarljóð vínarblóð vekur kæti og hetjumóð

Tagged:

Nú styttist óðfluga í Vínartónleikana okkar, en þeir verða haldnir í
Miðgarði þann 14. janúar nk.

Kórmenn sátu límdir við sjónvarpstækin um áramótin þegar sýnt var frá
Vínartónleikum í Vínarborg.

Sá er þó munurinn að í Miðgarði verður líka dansað.

Aukinheldur gerði elskuleg kórstýra okkar sér ferð í Vínarskóg um áramótin
til þess að drekka í sig Vínarmenninguna ómengaða.

Sumir ku orðnir spenntir, byrjaðir að pressa buxur, pússa skó og finna til
sparitennurnar sínar.

Þá hefur kvisast að sóknarnefnd Glaumbæjarprestakalls hafi óskað eftir því
við kirkjuráð að nafni prestakallsins verði breytt í Vínarbrauð, amk. nú í
janúar.

Rétt er að minna aðdáendur á að miðum í forsölu fækkar óðum. Herdís í
Kompunni og Pétur í KS Varmahlíð eru farin að huga að fjölgun starfsfólks
til að anna miðasölu .

 

Gleðileg Jól.

Tagged:

Karlakórinn Heimir óskar velunnurum sínum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.  Við þökkum stuðninginn á líðandi ári.

Vínarkvöld – nýársskemmtun í Miðgarði 14. janúar 2012.

Tagged:

Karlakórinn Heimir, einsöngvararnir Helga Rós og Óskar Pétursson ásamt hljómsveitinni Salón Islandus  bjóða upp á fyrsta flokks Vínartónlist á nýársskemmtun í Miðgarði sem er alger nýjung hér í Skagafirði. Hátíðarræða kvöldsins verður flutt af Katrínu Jakobsdóttur,  menntamálaráðherra.

Í hljómssveitinni leika átta hljóðfæraleikarar, 2 fiðlur, selló, kontrabassi, klarinett, flauta, píanó og slagverk úr röðum færustu tónlistarmanna landsins. Þar má telja Sigurð Ingva Snorrason, sem leiðir bandið, Sigrúnu  Eðvaldsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Pétur Grétarsson.  Tónleikarnir líða svo út í dansleik þar sem dansað verður við undirleik Salón Islandus undir styrkri dansstjórn Loga Vígþórssonar, hins vinsæla danskennara Skagafirðinga til margra ára.

Tónleikarnir hefjist kl 20:30 og dansi lýkur kl 1:00 eftir miðnætti..

Vínartónlistin er í léttari kanti sígildrar tónlistar. Þekktastir eru líklega vínarvalsar Straussfeðga og óperettutónlist Lehars o.fl. Þetta er aðgengileg, létt og upplífgandi tónlist, áhyggjulaus og eðlileg, ákaflega hressandi í skammdeginu. Vínartónlist er samt meira en Straussvalsar og óperettukórar. Marsar og mazúrkar ásamt öðrum taktvísum gömlu dansanna kalla á að tónleikarnir endi með dansleik þar sem gestum gefst færi á að stíga dans  við undirleik sinfónískrar hljómsveitar og rifja upp valsa, polka og aðra klassíska dansa undir leiðsögn dansstjóra upp á gamla móðinn.

Forsala aðgöngumiða er í Kompunni við Aðalgötu og í KS Varmahlíð og hefst 25. nóvember. Miðar fást í gjafaumbúðum, tilvalið til jólagjafa.
 

Söngur í Skagfirðingabúð og á dvalarheimili

Tagged:

Laugardaginn næstkomandi, þann 17. desember, mun Heimir syngja nokkur lög í Skagfirðingabúð, kl. 16:00.  Þar verða sungin jólalög og jólasálmar, auk þess sem kynnt verða lög sem fyrirhugað er að flytja á Vínartónleikum kórsins þann 14. janúar nk.
Stjórn kórsins á í viðræðum við Hurðaskelli um að mæta með okkur í Skagfirðingabúð, en þær viðræður ganga satt best að segja hægt, því honum er meinilla við þessar nýmóðins búðarhurðir sem engin lifandi leið er að skella almennilega.  Vonandi tekst þeim þó að sannfæra hann um að mæta.  Litlar líkur eru taldar á því að Grýla mæti, enda er hún víst ekki vel frísk, hún er jafnvel talin af skv. sumum heimildum.  Börnum ætti því að vera óhætt að mæta með foreldrum sínum í Skagfirðingabúð á laugardaginn.
Eftir sönginn í Skagfirðingabúð verður haldið upp á Sauðárhæðir og sungið fyrir heimilisfólk þar.  Þar eru sumir okkar tryggustu áheyrenda og gamlir kórmenn innanum, og það er alltaf góður andi sem fylgir tónleikum þar.
Eitt sinn, fyrir ekki mörgum árum, voru haldnir tónleikar fyrir jól á dvalarheimilinu.  Pétur Pé var kynnir og hann hóf mál sitt eitthvað á þessa leið:  "Þessi hópur af gamalmennum sem hér er saman kominn..."  Hér tók Pétur sér góða málhvíld og leit yfir áheyrendaskarann, en hélt svo áfram og sagði: "... heitir Karlakórinn Heimir og ætlar að syngja nokkur lög fyrir ykkur í dag!"

Æfingar fyrir Vínartónleikana standa annars sem hæst þessa dagana og ganga vel.  Við minnum á forsölu miða í KS Varmahlíð og í Kompunni á Sauðárkróki.

Óperutöfrar kveiktu áhugann

Tagged:

Ekkert gleður okkur í Heimi meira en þegar við verðum þess áskynja að það sem við gerum eða tökum þátt í nái til áheyrenda og hafi jafnvel djúpstæð áhrif á þá.
 
Í síðasta tölublaði Feykis er skemmtileg frásögn af ungri snót ættaðri héðan úr Skagafirði, Birtu Dröfn Valsdóttur.  Hún hefur lært söng frá unga aldri, og tekur nú þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautunni.  Í viðtalinu segir Birta m.a. frá því hvernig áhugi hennar á óperutónlist kviknaði:
 

"... Hún hafði ekki svo mikið leitt hugann að því að syngja óperu fyrr en hún fór á tónleikana Óperutöfrar í Skagafirði sem Karlakórinn Heimir hélt um verslunarmannahelgina.
-Þar sungu þau Gissur Páll Gissurarson, Helga Rós Indriðadóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ólafsson (sem fer einmitt með hlutverk Papagenó í Töfraflautunni) en á þessum tónleikum varð ég algjörlega hugfangin af þessari tónlist og langaði ekkert frekar en að taka þátt í svona ævintýri og vinna með svona færu fólki."

Birta segir svo að allt frá barnæsku hafi draumur hennar verið að syngja einsöng með Karlakórnum Heimi.  Hver veit nema sá draumur rætist einn góðan veðurdag?
 
(Þess skal reyndar getið að Karlakórinn Heimir hélt ekki umrædda tónleika, þó hann tæki þátt í þeim.  Heiðurinn af skipulagningu og framkvæmd tónleikanna á stjórnandi okkar, Helga Rós Indriðadóttir.)
 

 

Styrkur frá Menningarráði Norðurlands vestra

Tagged:

Karlakórinn Heimir hlaut á dögunum veglegan styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra vegna Vínartónleikanna sem fyrirhugað er að halda í Miðgarði þann 14. janúar nk. Styrkúthlutunin fór fram í Selasetrinu á Hvammstanga fimmtudaginn 20. okt. sl. Að þessu sinni voru verkefni tengd tónlist og heimildamyndagerð mest áberandi við úthlutunina.  Ýmsir góðkunningjar Heimis fengu styrki til tónleikahalds í vetur, svo sem Rökkurkórinn og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, að ógleymdum harmonikusnillingnum Jóni Þorsteini Reynissyni, sem lék með okkur á tónleikum síðastliðinn vetur og sýndi slík tilþrif að viðstaddir trúðu varla eigin augum, hvað þá eyrum.
 
Menningarráðið hefur í gegnum tíðina stutt dyggilega við bakið á Karlakórnum Heimi, og verður framlag þess til kórsins seint fullþakkað.
 
Æfingar vegna tónleikanna eru nú í komnar í fullan gang, og fyrstu valsarnir byrjaðir að síast inn hjá kórmönnum.

 

Syndicate content