Aðalfundur og tónleikar..

Tagged:

Fimmtudaginn 16. febrúar 2012 halda kórbræður aðalfund. Endurnýjunar er að
vænta í forystunni, en Jón „forseti“ Sigurðsson hefur látið þau boð út ganga
að hann óski eftir að draga sig í hlé eftir 6 ára starf sem formaður.
Félagar eru á einu máli um að formannsferill Jóns hafi verið farsæll.

Framundan eru svo tónleikar í Reykholt föstudaginn 9. mars. Miða verða
seldir við innganginn. Tvennir tónleikar með  Karlakór Reykjavíkur verða
sungnir þann 10. mars í Guðríðarkirkju í Grafarholti kl 15:00 og kl 17:30,
sjá auglýsingu. Miðasala á Reykjavíkurtónleikana hefst þann 15. febrúar á midi.is